
Casemiro hefur staðfest að hann muni yfirgefa Manchester United í sumar og segir enga möguleika á að hann verði áfram á Old Trafford.
Brasilíumaðurinn tilkynnti í janúar að hann myndi fara í lok tímabils en hefur það verið rætt hvort honum gæti snúist hugur, sér í lagi vegna þess hversu mikilvægur hann er liðinu.
„Ég held að það sé enginn möguleiki. Þetta hafa verið fjögur frábær ár og ég er afar þakklátur félaginu og stuðningsmönnunum. Á Englandi verð ég alltaf stuðningsmaður Manchester United,“ segir Casemiro hins vegar.
Stuðningsmenn United hafa kallað eftir því að hann verði áfram, en miðjumaðurinn er staðráðinn í að hætta á toppnum. Gengi liðsins hefur verið frábært eftir áramót og hefur það tryggt Meistaradeildarsæti þó þrjár umferðir séu enn eftir.