fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Davíð Þór tjáir sig um óvænt skipti Kára – „Þegar sú er ekki raunin er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 19:29

Mynd: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Kristjánsson er genginn í raðir Þróttar á nýjan leik eftir stutta dvöl hjá FH.

Þetta hafði legið í loftinu en hefur nú verði staðfest af báðum félögum. Kemur þetta nokkuð á óvart í ljósi þess að Kári var keyptur til FH frá Þrótti í vetur, eftir að hafa verið einn besti maður Lengjudeildarinnar.

„Kári kom að máli við okkur fyrir ekki svo löngu síðan og lýsti yfir vilja að fara aftur heim. Þróttarar voru tilbúnir að borga uppsett verð fyrir hann og í framhaldinu ákváðum við að leyfa leikmanninum að fara.

Í þeirri uppbyggingu sem við erum í er mikilvægt að leikmennirnir okkar séu tilbúnir að leggja allt í verkefnið og þegar sú er ekki raunin þá er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið,“ er haft eftir Davíð Þór Viðarssyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá FH, í tilkynningu félagsins.

Kári hefur komið við sögu í fjórum af fyrstu fimm leikjum FH í Bestu deildinni, þar af hefur hann byrjað tvo þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni
433Sport
Í gær

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum
433Sport
Í gær

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London