Íslenska karlalandsliðið þurfti að sætta sig við grátlegt tap gegn Svíum í kvöld en leikið var í Portúgal.
Um var að ræða æfingaleik í Portúgal en það vantaði margar stjörnur í bæði íslenska og sænska liðið.
Strákarnir okkar komust yfir í fyrri hálfleik er Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði er 30 mínútur voru komnar á klukkuna.
Sveinn Aron fékk tækifæri á vítapunktinum og klikkaði en náði frákastinu og skoraði.
Ísland var lengi með forystuna í leiknum en á 85. mínútu jafnaði leikmaður að nafni Elias Andersson fyrir Svía.
Það var svo á 94. mínútu í uppbótartíma sem Jacob Ondrejka komst á blað og sá um að tryggja þeim sænsku sigur, grátlegt eftir flotta frammistöðu.
Hér fyrir neðan má heyra viðtal við Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfara, eftir tapið.
Arnar Þór Viðarsson þjálfari í viðtali við KSÍ TV eftir ótrúlega svekkjandi tap gegn Svíum á Algarve. Næsta verkefni A landsliðs karla er í mars þegar undankeppni EM 2024 hefst með tveimur útileikjum. pic.twitter.com/MKR00yYYNk
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 12, 2023