fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Segir ólíklegt að Saka muni byrja úrslitaleikinn

Ísak Gabríel Regal
Fimmtudaginn 8. júlí 2021 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Neville, fyrrverandi landsliðsmaður Englands og sparkspekingur heldur því fram að Bukayo Saka muni ekki byrja úrslitaleik Evrópukeppninnar gegn Ítalíu á sunnudaginn. Saka hefur staðið sig vel á mótinu til þessa en hann átti meðal annars þátt í jöfnunarmarki Englendinga gegn Dönum í undanúrslitunum.

Í viðtali við Sky Sports er Gary Neville hins vegar ekki á því að unglingurinn muni byrja leikinn. Hann segir leikinn of stóran fyrir Arsenal manninn, og þykir líklegt að Marcus Rashford eða Jadon Sancho byrji í hans stað.

Ég var á því að hann ætti að koma aftur inn í liðið í gær. Hann hafði verið sprækastur af vængmönnunum, ásamt Sterling,“ sagði Neville.

Ég er ekki viss um að hann byrji á sunnudaginn. Ég held að það gæti verið of mikið fyrir hann. Miðað við hvað hann hefur skilað miklu af sér á mótinu býst ég við að einhver annar byrji í hans stað. Þegar ég lít á Chiellini og Bonucci og velti fyrir mér hvern þeir munu alls ekki vilja glíma við, hugsa ég að þetta gæti verið tilkominn leikur fyrir Marcus Rashford eða Jadon Sancho til að spila á köntunum með Sterling,“ sagði hann.

Ég held að það þurfi að vera snöggir menn á vængjunum, sem geta komið með hlaup inn á vítateiginn. Þess vegna held ég að Saka verði ekki í byrjunarliðinu.“

Fyrrverandi United maðurinn sagði einnig að hann hefði ekki verið nógu vel upplagður þegar hann var svona ungur.

Ég man þegar ég var 21 árs á EM 1996. Ég var gjörsamlega úrvinda á mótinu.“

Fyrrverandi Arsenal maðurinn Ian Wright hrósaði Saka hins vegar í hástert.

Við erum að tala um einhvern sem hefur spilað á stóra sviðinu áður. Hann var sjö ára þegar hann gekk til liðs við akademíuna hjá Arsenal og hefur spilað fyrir Englendinga síðan hann var 16 ára gamall. Hann kom ekki sem þruma úr heiðskíru lofti. Honum var ætlað að spila á svona stórum mótum. Þess vegna vita allir Arsenal menn hvers hann er megnugur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Keyrði fullur og missir prófið í eitt ár

Keyrði fullur og missir prófið í eitt ár
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fyrrum stjarna lenti í ógeðslegu atviki – Umtalað myndband af því verið fjarlægt

Fyrrum stjarna lenti í ógeðslegu atviki – Umtalað myndband af því verið fjarlægt
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Áhugi United á Fernandes til staðar – Fer ef þeir falla

Áhugi United á Fernandes til staðar – Fer ef þeir falla
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Tvö ensk stórlið fylgjast með öflugum leikmanni PSG

Tvö ensk stórlið fylgjast með öflugum leikmanni PSG
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fréttamaður RÚV vonar að Alfreð horfi í Vesturbæinn þegar hann ræður inn nýjan mann í Noregi

Fréttamaður RÚV vonar að Alfreð horfi í Vesturbæinn þegar hann ræður inn nýjan mann í Noregi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Birta myndir af sér eftir alvarlegan árekstur á Brúnni – Ansi mörg spor í andlitið

Birta myndir af sér eftir alvarlegan árekstur á Brúnni – Ansi mörg spor í andlitið
433Sport
Í gær

Drauma sunnudagur hjá Jökli í Kaleo – Fékk áhugaverða gjöf frá einni af hetjunum

Drauma sunnudagur hjá Jökli í Kaleo – Fékk áhugaverða gjöf frá einni af hetjunum
433Sport
Í gær

Frank Lampard vill að þetta verði fyrstu kaup félagsins í sumar

Frank Lampard vill að þetta verði fyrstu kaup félagsins í sumar