Lionel Messi átti góðan leik í gær er Barcelona spilaði við Atletico Madrid í stórleik helgarinnar á Spáni.
Messi skoraði eina mark leiksins fyrir Atletico í 0-1 sigri með frábæru skoti fyrir utan teigs.
Messi hefði vel getað slasast í leiknum en stuðningsmenn Atletico voru aðeins of blóðheitir í stúkunni.
Í eitt sinn ákváðu þeir að negla heilli regnhlíf í átt að Messi sem hitti leikmanninn sem betur fer ekki.
Dómarinn stöðvaði leikinn í stutta stund á meðan hann fjarlægði hlutinn af grasinu.
Þetta má sjá hér.