Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, er orðinn pirraður á sögusögnum um Jose Mourinho.
Zidane viðurkenndi það sjálfur í dag en Mourinho er orðaður við endurkomu til Real.
Frakkinn ku vera valtur í sessi þessa stundina eftir ósannfærandi byrjun á leiktíðinni.
,,Í fótboltanum þá gleymir fólk því sem þú hefur gert í fortíðinni,“ sagði Zidane við blaðamenn.
,,Það mikilvægasta er nútíminn.. Ég ætla ekki að segja að þetta pirri mig ekki, það sem sagt erum aðra þjálfara því það gerir það.“