433

Mikael hjálpaði sínum mönnum að komast á toppinn

Mynd

Hinn efnilegi Mikael Anderson var í byrjunarliði Midtjylland er það mætti Randers í Danmörku í kvöld.

Mikael og félagar hafa verið óstöðvandi á tímabilinu og eru á toppnum eftir 13 umferðir.

Mikael skoraði fyrra mark Midtjylland gegn Randers í kvöld en þar lék eitt sinn Hannes Þór Halldórsson.

Midtjylland vann 2-1 heimasigur og er með 32 stig á toppi deildarinnar, fjórum stigum meira en FCK.