433

Carragher: Arsenal verri í dag en undir Wenger

Mynd
Carragher (lengst til vinstri).

Jamie Carragher var langt frá því að vera hrifinn af Arsenal í kvöld sem tapaði 1-0 gegn Sheffield United.

Unai Emery er stjóri Arsenal í dag en hann hefur ekki náð að koma liðinu almennilega í gang.

Carragher segir að liðið sé jafnvel verra í dag en undir Arsene Wenger sem fór á síðasta ári.

„Ég sé engan mun á þeim núna og þegar Arsene Wenger var þarna undir lokin. Ég sé það ekki,“ sagði Carragher.

„Stundum þá líta þeir bara verr út. Sheffield spilaði betri fótbolta í fyrri hálfleik og ég held að við hefðum ekki séð það undir Wenger.“