433

Hundfúll eftir tapið í gær: „Hefði tekið þá alla af velli í hálfleik“

Mynd

Manuel Pellegrini, stjóri West Ham, var bálreiður út í sína menn eftir 2-0 tap gegn Everton í gær.

West Ham hefur oft spilað betur en í gær og var Everton verðskuldaður sigurvegari eftir lokaflautið.

Pellegrini hefði viljað taka alla leikmennina af velli í hálfleik ef það væri löglegt.

„Ég er auðvitað ekki ánægður. Við vissum fyrir leikinn að Everton væri erfiður mótherji á heimavelli og staða þeirra í deildinni var að fara gera okkur erfitt fyrir," sagði Pellegrini.

„Við áttum ekki skot í fyrri hálfleik og Everton gat skorað meira. Ég ákvað að taka Felipe Anderson af velli í hálfleik en ég hefði tekið alla 11 leikmennina út ef það væri möguleiki.“