433

Sky: Manchester United býður í Emre Can

Mynd

Manchester United ætlar að leggja fram tilboð í Emre Can, leikmann Juventus í janúar.

Það er Sky Sports sem fullyrðir þessar fregnir en Can er sterklega að íhuga að færa sig um set.

Can er fyrrum leikmaður Liverpool en hann á ekki fast sæti hjá Juve undir stjórn Maurizio Sarri.

Sarri valdi Can ekki í Meistaradeildarhóp Juventus og er hann því ekki leikfær í deild þeirra bestu.

Can er opinn fyrir því að snúa aftur til Englands og hefur United mikinn áhuga.