433

Staðfest að tvær stjörnur verði ekki með United um helgina

Mynd

Manchester United verður án tveggja lykilmanna um helgina er liðið spilar við Liverpool.

Það eru ekki fréttir sem stuðningsmenn United vildu heyra en Liverpool er sterkasta lið Englands í dag.

Þeir Paul Pogba og David de Gea verða ekki með United í leiknum en þeir eru báðir meiddir.

Ole Gunnar Solskjær staðfesti það í dag að allar líkur væru á að báðir leikmenn yrðu fjarverandi.

Pogba lék ekki með Frökkum gegn Tyrkjum á dögunum og De Gea meiddist í leik Spánar og Svía í gær.