Wayne Rooney, fyrrum fyrirliði Manchester United, komst í fréttirnar í síðasta mánuði eftir ölvun á almannafæri. Rooney var handtekinn á flugvelli í Washington en hann var í annarlegu ástandi eftir langt flug.
Samkvæmt enskum miðlum hefur Rooney komið sér í meira klandur og hótar konan hans, Coleen Rooney að fljúga aftur heim til Bretlands. Þau eru búsett í Bandaríkjunum þessa stundina en Rooney samdi við DC United í MLS-deildinni á síðasta ári. Samkvæmt miðlum ytra hangir hjónaband þeirra á bláþræði og er ástæðan sögð vera sú að eftir að Rooney hafi drukkið ótæplega á bar og reynt að tæla afgreiðslustúlku. Atvikið átti sér stað á Florída þar sem Rooney var í æfingaferð á dögunum.
Saga Wayne Rooney utan vallar: Fyllerí, kaup á vændiskonum og rothögg
,,Þú hefur niðurlægt mig aftur,“ er haft eftir Coleen og er bætt við að hún hafi aldrei verið eins sár og reið út í eiginmann sinn.
Afgreiðslustúlkan hefur tjáð sig um málið og hafði gaman af samskiptum sínum við Rooney, en þau fóru á milli staða og drukku hressilega.
Enskir miðlar halda áfram að fjalla um málið en nú er sagt frá því að Coleen hafi skipað Rooney að leita sér aðstoðar og að hann fari í meðferð, það yrði ekki fyrsta meðferðin samkvæmt enskum miðlum.
Enskir miðlar segja nefnilega frá því að Rooney hafi farið á mikið og langt fyllerí eftir tap gegn Íslandi á Evrópumótinu í Frakklandi. Þar fór Rooney á fyllerí í nokkra daga og Coleen lét hann fara að hitta áfengisráðgjafa. Þar ræddi hann málin og tók sig á.
Ísland vann þar sinn fræknasta sigur í fótboltanum gegn Englandi í 16 liða úrslitum, mikið högg fyrir Rooney og félaga, og hann hallaði sér að flöskunni til að gleyma stað og stund.
Síðan 2016 hefur hallað undan fæti, Rooney hefur keyrt fullur og daðrað við fjölda kvenna þegar hann fær sér í glas. Þetta vill Coleen stoppa og vonast til þess að meðferð bjargi hjónabandi þeirra, þau eiga fjögur börn saman.
Fjölmiðlar hafa fylgst náið með Coleen síðustu daga og náð af henni myndum. Það sem hefur vakið sérstaka athygli bresku pressunnar er að Coleen gengur ekki lengur með giftingarhringinn sinn sem hún setti upp á meðan allt lék í lyndi. Rooney hins vegar er enn með sinn hring á fingrinum.