fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 17:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í þorpinu Hagenbach í Frakklandi fékk símtal á mánudaginn frá aðila sem óttaðist að barn væri læst inni í sendibifreið. Þorpið er staðsett nærri landamærunum við Sviss og Þýskaland.

Þegar lögreglu bar að garði heyrðu þeir í ungum dreng og var ákveðið að brjóta upp dyrnar á bílnum. Ekki bjuggust lögreglumenn við þeim hryllingi sem beið þeirra. Þarna inni lá gífurlega vannærður 9 ára drengur innan um rusl og saur. Drengurinn hafði verið læstur inn í bílnum síðan í nóvember árið 2024, eða í um eitt og hálft ár. Drengurinn hafði varið þessum tíma ýmist sitjandi eða liggjandi og höfðu vöðvarnir í fótum hans rýrnað svo mikið að hann gat ekki gengið.

Faðir drengsins sagðist hafa gert þetta til að vernda son sinn, enda hafi eiginkona föðurins viljað senda drenginn á geðdeild. Engum gögnum er fyrir að fara sem benda til þess að drengurinn hafi glímt við andlega erfiðleika. Þvert á móti var hann fyrirmyndarnemandi í skóla áður en hann hvarf sporlaust árið 2024, þá sjö ára að aldri. Faðir drengsins hefur verið ákærður fyrir barnaráð og er nú í haldi lögreglu. Eiginkona föðursins hefur sömuleiðis verið ákærð, en hún þvertekur fyrir að hafa vitað hvar drengurinn var niðurkominn. Eldri systur drengsins, 10 og 12 ára, eru nú í umsjón félagsþjónustunnar.

Vinir og vandamenn drengsins töldu að hann væri á geðsjúkrahúsi. Kennurum hans hafði verið sagt að hann væri kominn í annan skóla.

Drengurinn er nú á sjúkrahúsi.

AP News greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið