Þýski bílaframleiðandinn BMW varar fólk við því að kaupa svokallaðar sjóræningaútgáfur af bílunum þeirra eftir að verksmiðjur í Rússlandi hafa tekið upp á því að framleiða BMW bifreiðar án leyfis frá fyrirtækinu.
Fram kemur í umfjöllun þýska dagblaðsins Bild að Avtotor verksmiðjan í Kaliningrad hafi byrjað á því í fyrra að framleiða ýmsar tegundir af BMW bifreiðum úr áður ósamsettum hlutum. BMW sleit öllum samskiptum við verksmiðjur í Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu.
Caroline Bachmann sagði við Radio Free Europe að verksmiðjan sé að notast við gamlar teikningar og hluta sem urðu eftir þegar fyrirtækið hætti starfsemi þar í landi 2022. Einnig sé notast við aðra íhluti sem kunna að koma frá löndum sem eru enn vinveitt Rússlandi.
Bílasérfræðingurinn Christopher Ludwig varar við að í slíkum sjóræningaútgáfum kunni að leynast ýmsir gallar, bæði í rafkerfinu, hugbúnaði og samsetningu. Þá sé engin tenging við BMW í gegnum hugbúnaðinn líkt og í venjulegum bílum.
Nýr BMW X7 kostar þar um 19 milljónir króna en hjá BL kostar hann tæpar 36 milljónir. Eftirspurnin er mikil í Rússlandi en í fyrra voru seldir 16.700 BMW bílar þar í landi sem er 40% aukning frá árinu á undan.