fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Pressan

Handtekinn eftir rúm 30 ár á flótta – „Hann hefur verið eins og draugur síðan 1994“

Pressan
Miðvikudaginn 13. maí 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk löggæsluyfirvöld hafa loks haft hendur í hári hins 56 ára gamla Richard Werstine sem verið hefur á flótta undan réttvísinni í rúm 30 ár.

Werstine var eftirlýstur fyrir morðið á besta vini sínum og sambýlismanni, rokksöngvaranum Rodney Barner, árið 1993. Barner var forsprakki harðkjarnasveitarinnar Cold as Life. Werstine var handtekinn í Panama í lok apríl.

Barner, sem kom fram undir sviðsnafninu Rawn Beauty, fannst látinn á heimili þeirra í Detroit þann 15. september árið 1993. Hann hafði verið skotinn í höfuðið í svefni.

Werstine var handtekinn nokkrum dögum eftir morðið og átti að mæta fyrir dóm vegna málsins. Hann lét sig hins vegar hverfa áður en réttarhöld hófust og komst undan yfirvöldum í rúmlega 30 ár.

Samkvæmt yfirvöldum hafði Werstine notað fjölda falskra nafna í gegnum árin, meðal annars nafnið Joseph Alan Stavros.

Þegar hann var handtekinn í Panama fannst hann með fölsuð skilríki og tókst aðeins að staðfesta auðkenni hans með fingrafaragreiningu.

„Hann hefur verið eins og draugur síðan 1994,“ sagði heimildarmaður við sjónvarpsstöðina WDIV sem New York Post vitnar til. „Hann var mjög slunginn og útsmoginn á flóttanum.“

James Allen, aðstoðarforstjóri hjá US Marshals Service í Detroit, sagði Werstine hafa byggt sér nýtt líf í Panama og talið sig öruggan þar.

Rannsókn leiddi í ljós að hann hafði búið í Panama frá árinu 2005. Þá kom einnig fram að hann hefði komist í kast við lögin í Bandaríkjunum eftir morðið og áður en hann flúði til Panama. Hann var handtekinn undir mismunandi nöfnum án þess að yfirvöld gerðu sér grein fyrir hver hann raunverulega var.

Fulltrúar bandarískra yfirvalda fóru til Panama þann 9. maí síðastliðinn til að flytja Werstine aftur til Bandaríkjanna þar sem hann mun svara til saka í málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svört spá – Mörg flugfélög munu fara á hausinn

Svört spá – Mörg flugfélög munu fara á hausinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notaðu „7-orðabrelluna“ þegar þú getur ekki sofið – Virkar eins og bremsa á hugsanir

Notaðu „7-orðabrelluna“ þegar þú getur ekki sofið – Virkar eins og bremsa á hugsanir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sögulega stór víkingafjársjóður er kominn í leitirnar

Sögulega stór víkingafjársjóður er kominn í leitirnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar