fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 13. maí 2026 11:13

Hildur María Friðriksdóttir. Mynd: Silla Páls.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur María Friðriksdóttir, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands sem skipar 6. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir nauðsynlegt að gera Kópavogsbæ að fjölskylduvænni bæ og lækka þurfi gjöld og hafa sanngjarnari afslætti fyrir barnafjölskyldur.

„Mig langar bara að sýna þetta svart á hvítu hérna rétt fyrir kosningar. Fyrir maímánuð þar sem yngra barnið mitt er í vistun í 7 klst. og 45 mínútur á dag (sem er samt minna en við hefðum viljað hafa hana, sem vinnandi fólk), þá erum við að borga 53.731 kr.,“

skrifar Hildur María í færslu sinni á Facebook og birtir með reikning frá Kópavogsbæ fyrir maímánuð. Á reikningnum kemur fram greiðsla fyrir hádegismat, síðdegishressingu og námsgjald sex ára dóttur Hildar Maríu.

Segir hún þau hjónin ekki með háar tekjur og flokkast sem meðaltekjufólk, sem hefur í för með sér að þau fá ekki tekjutengdan afslátt. Skerðingin er við 1.288.656 kr. fyrir 10% afslátt hjá sambúðarfólki, eða 644.328 kr. á mann fyrir skatt“, segir Hildur María.

Ber Hildur María gjaldið hjá Kópavogi saman við Reykjavík, en þar kostar korteri lengri vistum daglega 33.290 kr. með öllu, eða 20.441 kr. minna mánaðarlega, auk þess sem afsláttur þar er að fullu vegna námsgjalds fyrir eldra systkini.

„Í Reykjavík kostar 8 tíma vistun (meira en við höfum) 33.290 kr. með öllu inniföldu. Í Reykjavík er einnig 100% afsláttur af námsgjaldi fyrir eldra systkini sem gildir þvert á dagforeldra, leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili. Í Kópavogi er 50% afsláttur af dvalargjaldi fyrir eldra barnið og þá aðeins ef það er líka á leikskóla eða hjá dagforeldri.

Þetta er það sem við erum að tala um þegar við tölum um að Kópavogur sé með auknar álögur á barnafólk. Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt.“

Segir Hildur María Kópavogsmódelið vera að grunni til gott og það sé ekki ætlun hennar flokks, Samfylkingarinnar, að leggja það af, „en það þarf ekki að þýða að foreldrar eigi að sitja eftir með þessu himinháu gjöld. Það á að vera hægt að halda í það góða, þ.e. tryggja starfsfólki leikskólanna og börnunum viðunandi aðstæður og um leið lækka gjöld og hafa sanngjarnari afslætti fyrir barnafjölskyldur.“

Óskar Hildur María eftir stuðningi við hennar flokk í sveitastjórnarkosningum „svo við fáum þessu breytt og gerum Kópavog að fjölskylduvænni bæ.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt