
Hin ráðagóða Abby hefur svarað lesendum bandarískra fjölmiðla síðan á sjötta áratug síðustu aldar. Hún hefur verið svo vinsæl að eftir að hin upprunalega Abby, Pauline Esther Phillips, lést árið 2013 tók dóttir hennar, Jeanne Phillips, við keflinu.
Abby tekst á við ýmislegt sem brennur á lesendum hennar og endurspegla svör hennar stundum breytingar í samfélaginu sem fólk hefur ekki endilega áttað sig á.
Kona nokkur leitaði ráða og sagðist vera trúlofuð frábærum manni, sagði þau ótrúlega hamingjusöm og hún gæti ekki beðið eftir að líf þeirra saman byrji.
„Það er bara eitt vandamál, besti vinur hans, „Joey“. Joey er frábær við unnusta minn og almennt fín manneskja, en hann er raðframhjáhaldari.
Á þeim fimm árum sem ég hef þekkt hann hefur Joey farið á stefnumót og haldið framhjá mörgum konum, og sumar þeirra vingast ég við áður en ég áttaði mig á mynstrinu. Það er alltaf það sama: Joey hittir konu, lendir fljótt í einhverju djúpu sambandi og einkvæni, og svo eftir sex mánuði, byrjar hann að sofa hjá öðrum konum.“
Segir konan svo frá að Joey sé nú giftur nýjustu konunni, en þau hafi gift sig hjá dómara aðeins sex vikum eftir fyrstu kynni.
„Ég á erfitt með að koma mér til að hitta brúði hans. Ég þekki mynstrið. Ég veit að Joey mun halda framhjá eftir að brúðkaupsferðinni lýkur. Hún verður örugglega ekki lengi hér.
Ég finn að ég er að verða reið og ég er taugaóstyrk yfir því að vera í sama herbergi og þau. Vinir hans hafa sætt sig við hvernig hann er og eru vanir þessu mynstri. Ég vil sýna unnusta mínum virðingu og hitta nýju konu besta vinar hans og ég geri mér grein fyrir því að þetta er eitthvað sem ég mun þurfa að takast á við alla ævi ef þau halda áfram að vera vinir.
Konan segist sem femínisti hins vegar eiga erfitt með að horfa á Joey koma svona fram við hverja konuna á fætur annarri, „og það er samt búist við að ég hitti og vingist við hverja og eina. Hvernig get ég tekist á við þetta?“
Abby ráðlagði konunni að taka vel á málinu, hitta nýju konu Joey „og vera eins góð við hana og þú hefðir viljað að hún væri ef aðstæðurnar væru öfugar. Og á sama tíma hugsaðu þér. Þetta er fyrsta konan sem fær Joey að altarinu, og þó líkurnar séu kannski ekki miklar, þá gæti sambandið bara gengið upp. Undarlegri hlutir hafa gerst.“