
Þetta segja bandarísk eldvarnamálayfirvöld. Í leiðbeiningum frá þeim kemur fram að tækin séu ekki endilega straumlaus þótt það sé slökkt á þeim. Þau geta notað „standbystraum“ þrátt fyrir að slökkt sé á þeim.
Bandaríska orkumálaráðuneytið segir að „standbyrafmagnsnotkun“ geti verið á bilinu 5 til 50% af rafmagnsnotkun heimilisins. En það sem mestu máli skiptir er auðvitað öryggið og því ráðleggja eldvarnaryfirvöld fólki að taka lítil eldhústæki úr sambandi þegar þau eru ekki í notkun.
Þrjú tæki eru sérstaklega nefnd til sögunnar í þessu samhengi:
Airfryer er eitt af hitamyndandi eldhústækjunum og er það mat bandarískra eldvarnaryfirvalda að ekki sé skynsamlegt að hafa meira en eitt hitamyndandi eldhústæki í sambandi í sömu innstungunni.
Kaffivélin er í sama flokki. Hiti, rafmagn og lítið eftirlit er slæm blanda og það er kannski ástæðan fyrir að matseld er ein algengasta ástæða eldsvoða.
Brauðristin sker sig úr því þar erum við með hitagjafa og brauðmylsnu. Er því mælt með að brauðristin sé tekin úr sambandi þegar hún er ekki í notkun.