
Grady Judd, lögreglustjórinn í Polk-sýslu í Flórída, reiddi hátt til höggs á blaðamannafundi sem fjallaði um umfangsmiklar aðgerðir sem tengjast mansali. Alls voru 266 handteknir en Judd tók nokkra þeirra sérstaklega fyrir.
„Einn þeirra handteknu er Craig Long. Hann er 41 árs. Sum ykkar kannast mögulega við hann – hann er áhrifavaldur. Hann á líka Craig Long-líkamsræktarstöðina í Tampa. Hann var að falast eftir þjónustu vændiskonu.“
Judd tók fram að Long njóti töluverðra vinsælda á Instagram þar sem hann er með um 125 þúsund fylgjendur og 588 þúsund fylgjendur á TikTok. „Jæja, ég skal gefa honum efnivið fyrir samfélagsmiðla sína í dag. Hann hefur áður verið dæmdur fyrir refsilagabrot en hafði snúið blaðinu við – sem er það sem við viljum sjá í lífinu. Í dag er hann áhrifavaldur. Og þið vitið, hann er að hanga með áhrifafólki, jafnvel með forsetanum,“ sagði Judd og sýndi mynd af Long með Donald Trump Bandaríkjaforseta og syni hans, Donald Trump yngri.
„Þetta er mynd af honum með forsetanum og syni hans fyrir ekki svo löngu. Sko, við viljum sjá fólk sem gerir mistök snemma á lífsleiðinni – og hann átti sér langa sögu – snúa blaðinu við. Við kunnum að meta það að honum líkar við lögguna, já, honum líkaði svo vel við lögregluna að hann lenti í leynilegri aðgerð og komst þannig í náin kynni við lögguna. Við spurðum hann út í afstöðu hans til brotanna og hann sagðist hafa frábæra afstöðu. Hann kynni að meta lögregluna. Jæja, þar hefur þú það, handtekinn í leynilegri aðgerð gegn mansali. Það mun verða áhrifavaldur í hans lífi á næstu misserum.“
Annar sem var handtekinn er Ryan Yates. Hann hafði áður hlotið sex mánaða fangelsisdóm fyrir þátt sinn í áhlaupinu á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar árið 2021, en var síðar náðaður af forsetanum.
„Hann komst upp með brot sín þá en ekki núna,“ sagði Judd. „Hann kom hingað til að brjóta lögin. Við handtókum hann. Héraðssaksóknari mun tryggja að hann verði dreginn til ábyrgðar. Og hafið þetta í huga: Hann streittist ekki á móti okkur eins og hann gerði við lögregluna við þinghúsið. Hann vissi betur.“
Lesendur gætu talið að Judd þess sé demókrati eða óháður og hafi því haft sérstaklega gaman af því að hjóla svona í MAGA-liðana sem embætti hans handtók. Það er þó ekki svo. Judd er skráður repúblikani. Leynilega aðgerðin kallaðist: Polk Around and Find Out, sem er orðaleikur sem vísar til nafns sýslunnar og vinsæls frasa í netheimum: Fuck Around and Find Out sem á margt sameiginlegt við orðatiltækið um að fólk uppskeri eins og það sáir. Af handtökunum tengdust 247 þeirra vændi og 19 barnaníði.