
Hann er ekki sá fyrsti sem viðrar áhyggjur af þessu því á áttunda áratugnum varaði bandaríski bæklunarskurðlæknirinn og vísindamaðurinn Robert O. Becker við hugsanlegum áhrifum manngerðra rafsegulsviða á fólk.
Economic Times segir að Becker hafi tekið þátt í líffræðilegum rannsóknum á vegum bandaríska flotans þar sem áhrif lágbylgju rafsegulsviða á fólk voru rannsökuð. Í ljós kom að dýr uxu hægar og sýndu merki um stress ef þau voru útsett fyrir slíkum bylgjum.
Í sumum tilraunum á fólki kom í ljós að magn blóðfitu jókst ef fólk var útsett fyrir rafsegulsviðum. Meira magn blóðfitu getur verið snemmbúið merki um hjarta- og æðasjúkdóma.
Kruse tekur undir áhyggjur Beckers og í hlaðvarpi Danny Jones og sagði að nútímatækni valdi því að fólk sé útsett fyrir „ekki náttúrulegum“ rafsegulsviðum.
„Allt þetta hefur líffræðileg áhrif,“ sagði hann að sögn Unilad og tók þráðlausa tækni sem dæmi.
2015 skrifuðu 247 vísindamenn frá 42 löndum undir ákall um að rafsegulsvið geti hugsanlega haft neikvæð áhrif á heilsu fólks.
Aðrir sérfræðingar telja að hættan sé lítil.