
Los Angeles Times greinir frá þessu.
Í umræddum svikamálum reyndu hinir óprúttnu aðilar að láta það líta þannig út að villtur björn hefði framið skemmdarverk á dýrum bílum, þar á meðal Rolls-Royce Ghost og tveimur Mercedes-Benz bílum. Var það látið líta þannig út að birnirnir hefðu komist inn í bílana og skemmt innréttingar þeirra með beittum klónum.
Til að gera frásögnina trúverðugri tóku svikararnir upp myndband þar sem „björninn“ sést fara inn í bíl, gramsa í innréttingunni og klóra í leðursætin. Við fyrstu sýn virtist atvikið sannfærandi, en við nánari skoðun kom í ljós að maðkur var í mysunni.
Rannsakandi hjá tryggingafélagi tók eftir því að „björninn“ hreyfði sig grunsamlega og þá bætti ekki úr skák að villtir brúnbirnir – eins og sá sem sást í myndbandinu – hafa ekki sést í Kaliforníu í nærri heila öld.
Sérfræðingar staðfestu fljótlega það sem marga grunaði, að um væri að ræða manneskju í bjarnarbúningi.
Þrátt fyrir það höfðu tvö tryggingafélög þegar greitt út háar upphæðir. Bristol West greiddi rúmlega 52 þúsund dali auk 34 þúsund dala til að greiða upp bílalán, á meðan Progressive greiddi nær 56 þúsund dali vegna annarrar kröfu. Þriðja félagið, State Farm, hafnaði hins vegar kröfu eftir nánari skoðun. Í heildina nam tjónið um 142 þúsund Bandaríkadölum.
Við húsleit fundu yfirvöld sönnunargögn málsins: bjarnarbúning og verkfæri sem líktust klóm, notuð til að rispa innréttingar bílanna.
Fjórir einstaklingar voru ákærðir í málinu fyrir og hafa þrír þeirra játað brot sín að hluta og hlotið 180 daga fangelsisdóma.
Sérfræðingar sem LA Times ræddi við segja málið sýna bæði hversu skapandi svikarar geta verið og hversu mikilvægt sé fyrir tryggingafélög að skoða kröfur gaumgæfilega.