
Kayley greindist fyrst með lungnakrabbamein á síðasta ári og var þá talið að um fyrsta stig sjúkdómsins væri að ræða. Við aðgerð kom í ljós að sjúkdómurinn var genginn mun lengra genginn. Sjálf telur Kayley að mikil notkun hennar á rafrettum tengist sjúkdómnum.
Í janúar 2025 tók hún eftir óvenjulegum einkennum þegar hún fór að hósta upp brúnu slími sem virtist innihalda „kornótta bita“ eins og hún lýsir. Hún leitaði ítrekað til lækna, en fékk ávallt sömu svör sem voru á þá leið að hún væri með öndunarfærasýkingu.
„Síðan byrjaði ég að hósta upp blóði, svo þeir tóku röntgenmynd og fundu skugga á lunganu,“ segir hún. Læknar töldu óhugsandi að hún væri með krabbamein vegna þess hversu ung hún var en eftir vefjasýnatöku kom í ljós að um var að ræða illkynja krabbamein.
Við aðgerð var neðri hluti hægra lunga hennar fjarlægður ásamt nærliggjandi eitlum. Þá kom í ljós að krabbameinið hafði dreift sér í sex eitla. Eftir erfiða lyfjameðferð fékk hún þær jákvæðu fréttir í febrúar að hún væri laus við krabbamein, en gleðin reyndist skammvinn.
Mánuði síðar fór hún að finna fyrir miklum brjóstverkjum og greindist með fleiðruvökva, uppsöfnun vökva í kringum lungun. Tæplega tveir lítrar voru fjarlægðir, en rannsóknir sýndu að krabbameinið hafði snúið aftur.
Í þetta sinn hafði það dreift sér í fleiðruhimnu lungnanna og var henni þá gefinn líftími upp á um 18 mánuði. „Krabbameinslæknirinn sagði að þetta væri afar sjaldgæft og yfirleitt eitthvað sem sést hjá 80 ára sjúklingum,“ segir hún.
Læknar hafa ekki getað staðfest nákvæma orsök krabbameinsins, en hafa bent á að reykingar og veip hafi líklega haft neikvæð áhrif.
Kayley er sjálf sannfærð um að veipið hafi átt stóran þátt. Hún byrjaði að fikta við reykingar 15 ára gömul og færði sig svo yfir í rafrettur.
„Ég tel að krabbameinið tengist veipi því einkenni mín byrjuðu nokkrum mánuðum eftir að ég byrjaði á einnota rafrettum og það er ekkert lungnakrabbamein í fjölskyldunni minni.“
Hún hefur nú hætt alfarið og hvetur aðra til að gera slíkt hið sama.
„Ég hef ekki veipað í þrjá mánuði, ég lét kærasta minn hætta, ég lét mömmu mína hætta og ég hvet alla vini mína til að hætta.“
Kayley vonast nú til að safna 20.000 pundum, 3,3 milljónum króna, til að fjármagna meðferð í Þýskalandi sem gæti lengt líf hennar.
„Engin orð geta lýst því hvernig mér líður. Ég er 22 ára – þetta á ekki að gerast fyrir einhvern á mínum aldri,” segir hún og hvetur fólk til að halda sig frá veipi.