
Þetta kemur fram í nýrri bók, „Betrayal: Power, Deceit and the Fight for the Future of the Royal Family“, eftir Tom Bower. Hann segir að „gestur“ sem var viðstaddur veislu, sem Karl konungur hélt í tilefni krýningar sinnar, hafi sagt honum þetta. Hafi „gesturinn“ sagt að Vilhjálmur hafi ákveðið þetta kvöld að Harry verði ekki boðið í krýningarathöfnina. Express skýrir frá þessu.
Harry var viðstaddur krýningu föður síns en eiginkona hans, Meghan, og börn þeirra voru ekki viðstödd athöfnina.
Harry gegndi engu hlutverki við athöfnina og kom ekki út á svalir Buckingham hallar með öðrum úr konungsfjölskyldunni á krýningardeginum.
Bræðurnir hafa ekki sést saman opinberlega síðan í ágúst 2024 þegar þeir sóttu báðir útför Robert Fellowes, lávarðar, sem var mágur móður þeirra. The Sun segir að bræðurnir hafi „haldið sig frá hvor öðrum“ í útförinni og hafi ekki sést ræðast við.