fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 16:30

Dhaka í Bangladess. Mynd:Flickr/ASaber91

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómstóll í Bangladess dæmdi nýlega tvo fyrrverandi lögreglumenn til dauða fyrir að hafa banað námsmanni sem tók þátt í mótmælum gegn Sheikh Hasina og stjórn hans árið 2024.

The Independent segir að 30 manns hafi nú verið sakfelldir fyrir að hafa beitt mótmælendur harðræði.

Sheikh Hasina og stjórn hans hrökkluðust frá völdum í kjölfar mótmælanna.

Lögreglumennirnir voru sakfelldir fyrir að hafa verið viðriðnir drápið á Abu Sayed, háskólanema, sem var skotinn til bana í mótmælunum.

Þrír aðrir voru dæmdi í ævilangt fangelsi fyrir aðgerðir þeirra gagnvart mótmælendum og 25 til viðbótar voru dæmdir til mislangrar fangelsisvistar. Meðal þeirra eru lögreglumenn og starfsfólk háskóla.

Verjandi lögreglumannanna sagði að þeir muni áfrýja dómnum.

Abu Sayed, sem var 23 ára, var skotinn til bana í mótmælum 16. júlí 2024. Myndbandsupptaka sýnir hann standa á götu úti með handleggina beint út frá líkamanum á meðan lögreglan skaut að honum. Upptakan olli mikilli reiði í Bangladess og mótmælin mögnuðust enn frekar í kjölfarið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu