Þetta neyddist fyrirtækið til að gera eftir að vopnaðir uppreisnarmenn tóku brugghúsin á sitt vald. Heineken skýrir frá þessu í fréttatilkynningu.
Fyrirtækið segist ekki hafa haft yfirráð eða stjórn á brugghúsunum síðan 12. júní síðastliðinn. Ekki sé hægt að starfrækja þau á ábyrgan og öruggan hátt lengur. Það sé mikilvægast fyrir fyrirtækið að tryggja öryggi og vellíðan starfsfólks og því hafi allt starfsfólk yfirgefið brugghúsin. Fyrirtækið muni áfram styðja fjárhagslega við starfsfólkið.