fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Hjónin sögð taktlaust tvíeyki – „Þetta er svo klisjukennt“

Pressan
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimildarmenn konungsfjölskyldunnar eru yfir sig hneykslaðir á mætingu Harry Bretaprins og Meghan Markle í 70 ára afmælisveislu Kris Jenner og segja að það sýni hvers vegna hjónin ættu ekki að vera boðin aftur inn í konungsfjölskylduna, þau séu taktlaust tvíeyki.

„Þetta er svo klisjukennt,“ sagði heimildarmaður sem starfar fyrir konungsfjölskylduna.

Hertoginn og hertogaynjan af Sussex klæddust svörtu og mættu ásamt þotuliði fræga fólksins  í veislu Jenner, sem Amazon-milljarðamæringurinn Jeff Bezos og eiginkona hans Lauren Sánchez haldu í 165 milljóna dala eign þeirra í Beverly Hills á laugardagskvöldið.

Á meðal þeirra sem mættu voru Beyoncé og Jay Z, Martha Stewart, Mariah Carey, Oprah Winfrey, Paris Hilton, Adele, Kardashian-fjölskyldan og lýtalæknir Jenner, Dr. Steven Levine.

„Þetta sýnir sannarlega að Harry er svo fjarlægur restinni af fjölskyldunni.Það má vek vera að þetta fólk sé stjörnur í Ameríku, en þessi hreina yfirlætissemi stangast á við það sem Vilhjálmur prins er að reyna að gera með lífi sínu og konungsfjölskyldunni,“ sagði heimildarmaðurinn.

Hjónin með afmælisbarninu Kris Jenner.

Mark Zuckerberg, forstjóri Met, mætti einnig í afmælið, en hjónin og hann eiga í umdeildu sambandi. Í janúar gagnrýndu þau Zuckerberg harðlega fyrir að „stuðla að alþjóðlegri geðheilbrigðiskreppu“ eftir að Meta hætti staðreyndaskoðun og takmörkun á tjáningarfrelsi.

Viku eftir að Zuckerberg tilkynnti að Facebook myndi snúa aftur til upprunalegrar áherslu sinnar á tjáningarfrelsi, birtu hjónin yfirlýsingu á vefsíðu Archewell Foundation þar sem þau sögðu að þessi aðgerð myndi leyfa „meiri misnotkun“ og  „hatursorðræðu.“

Heimildarmaðurinn segir framkomu hjónanna einnig sýna hversu rótgróin þau eru orðin  innan Hollywood, þar sem fyrirtæki Bezos er að gera væntanlega mynd Markle, Close Personal Friends. Heimildir herma að hún muni leika sjálfa sig í rómantísku gamanmyndinni og fékk hlutverkið þar sem hún hefur „tengsl“ við kvikmyndagerðarmennina.

Myndin er gerð af Amazon MGM, sem er í eigu Bezos, og framleidd af Isaac Aptaker og Elizabeth Berger. Markle tók upp gestahlutverkið sitt í síðustu viku.

Heimildarmaðurinn segir að sumir embættismenn hallarinnar telji að hjónin ættu að vera boðin velkomin aftur í konungsfjölskylduna til að hjálpa til þegar bróðir Harrys, Vilhjálmur, tekur að lokum við hásætinu.

„Vilhjálmur hefur gert það ljóst að hann ætlað að verða konungur og hann hefur sannan klassa. Ég held að hann muni líta til yngri konungsfjölskylduna til að hjálpa, þar á meðal barna prins Játvarðs.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Shoigu sagður ógn við Pútín

Shoigu sagður ógn við Pútín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir mælir gegn of mikilli fiskneyslu ef fólk vill halda sér unglegu

Læknir mælir gegn of mikilli fiskneyslu ef fólk vill halda sér unglegu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?