Árásir Bandaríkjanna á þrjú kjarnorkumannvirki í Íran báru ekki þann árangur sem að var stefnt, samkvæmt frummati bandarísku leyniþjónustunnar. CNN greinir frá matinu og ræddi við fjóra aðila sem höfðu lesið matið. Stjórnarráð Bandaríkjanna staðfestir að matið sé raunverulegt en segist ósammála því.
Greiningu leyniþjónustunnar á afleiðingum árásanna er ekki lokið en samkvæmt þessu frummati tókst ekki að „tortíma“ kjarnorkumannvirkjunum eins og Donald Trump Bandaríkjaforseti og varnarmálaráðherra hans, Pete Hegseth, hafa haldið fram. Líklega hafi árásirnar aðeins tafið kjarnorkuáætlanir Íran um fáeina mánuði í mesta lagi.
Samkvæmt matinu tókst Íran að fjarlægja birgðir sínar af auðguðu úrani úr mannvirkjunum fyrir árásirnar og að þeytivindur séu að mestu heilar.
Samskiptafulltrúi ríkisstjórnarinnar, Karoline Leavitt, segir í yfirlýsingu til CNN:
„Þetta meinta mat er bersýnilega rangt og var flokkað sem ríkisleyndarmál en var engu að síður lekið til CNN af einhverjum lágtsettum aula innan leyniþjónustunnar. Lekinn á þessu meinta mati er augljós tilraun til að niðurlægja forsetann og gera lítið úr hugrökku orrustuflugmönnunum sem stóðu að þessari fullkomlega árangursríku aðgerð til að tortíma kjarnorkufyrirætlunum Írans. Allir vita hvað á sér stað þegar fjórtán 30.000 punda sprengjum er varpað með fullkominni nákvæmni á skotmörk sín – algjör tortíming.“
Hegseth er sömuleiðis ósammála matinu:
„Byggt á öllu sem við höfum séð – og ég hef séð allt – þá tókst sprengjuárás okkar að rústa getu Írans til að búa til kjarnorkuvopn. Risastóru sprengjurnar okkar lentu á hárréttum stað á öllum skotmörkunum og virkuðu nákvæmlega eins og þær áttu að gera. Afleiðingar sprenginganna eru grafnar undir fjalli af braki í Íran svo allir sem halda því fram að afleiðingar sprengjanna hafi ekki verið hrikalegar eru bara að grafa undan forsetanum og þessari árangursríku aðgerð.“