Sky News skýrir frá þessu og segir að strax hafi vaknað grunur um að Jennifer hefði verið myrt. Demantskreytt Rolex-úr var horfið af heimilinu og taldi lögreglan að hvarf þess tengdist morðinu.
Krufning staðfesti að Jennifer hafði verið barin til bana.
Nokkrum dögum eftir að Jennifer fannst látin, handtók lögreglan Nancy Pexton, 69 ára, systur Jennifer. Hún hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald, grunuð um að hafa banað systur sinni og stolið Rolex-úrinu.