fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Maðurinn sem hefur alltaf rétt fyrir sér – Telur að þessi hafi yfirhöndina fyrir kosningarnar í haust

Pressan
Miðvikudaginn 7. febrúar 2024 12:08

Hvor mun hafa betur í haust?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski sagnfræðingurinn Allan Lichtman hefur árum saman, eða allt frá 1984, spáð rétt fyrir um úrslit bandarísku forsetakosninganna.

Allt bendir til þess að Joe Biden, sitjandi forseti, og Donald Trump, fyrirrennari hans í embætti, muni berjast um hylli bandarískra kjósenda í haust. En hvor verður forseti?

Lichtman þróaði spákerfi sem hann kallar „lyklarnir að Hvíta húsinu“ en alls er um að ræða þrettán lykla eða spurningar sem er svarað til að fá niðurstöðu.

Meðal spurninganna er hvort forsetinn sé viðriðinn einhverskonar hneyksli? Er samfélagslegur órói í landinu? Er einhver frambjóðendanna með sérstaklega mikla persónutöfra eða talinn þjóðhetja? Hvernig er staðan í efnahagsmálum, bæði til skamms tíma og langs? Hvernig hefur gengið í utanríkismálum eða stríðsrekstri?

Lichtman telur að eins og staðan er núna sé Biden kominn með greipar sínar á fimm lykla en Donald Trump þrjá. Þá standa eftir fimm lyklar og segir Lichtman að enn sé því nægur tími til stefnu fyrir frambjóðendurna. Ef fer sem horfir séu þó meiri líkur en minni á að Joe Biden verði áfram Bandaríkjaforseti.

Í umfjöllun New York Post kemur fram að Lichtman hafi spáð rétt fyrir um að Donald Trump yrði Bandaríkjaforseti árið 2016 og að Joe Biden myndi hafa betur árið 2020.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?