
Lík Sharp fannst 12. febrúar 1982 nærri bæjarhátíðarsvæði St. Tammany-sýslu í Covington í Louisiana. Hún hafði verið beitt kynferðisofbeldi og kyrkt. Á þeim tíma höfðu rannsakendur lítil haldbær sönnunargögn og gengu gerendurnir lausir í 43 ár.
Málið var tekið upp að nýju árið 2023 þegar rannsóknarlögreglumenn hjá ríkislögreglunni í Louisiana ræddu aftur við vitni og þá sem voru grunaðir um aðild að málinu á sínum tíma. Þá voru eldri sönnunargögn send í ítarlega DNA-greiningu.
Tveimur árum síðar hófu lögregluyfirvöld samstarf við útvarpsmanninn Charles Dowdy hjá Northshore Media Group um gerð hlaðvarpsins Who Killed Roxanne Sharp?. Þættirnir vöktu talsverða athygli og gerðu það að verkum að lögregla fékk talsverðan fjölda af ábendingum og áður óþekktum upplýsingum.
Allt þetta hefur nú orðið til þess að fjórir karlmenn hafa verið handteknir grunaðir um morðið á Roxanne.
Billy Williams Jr., 62 ára, var handtekinn í Covington 21. apríl, og Darrell Dean Spell, 64 ára, var handtekinn á heimili sínu í Dayton í Ohio og bíður framsals til Louisiana. Hinir tveir, Perry Wayne Taylor og Carlos Cooper, báðir 64 ára, voru þegar í haldi vegna annarra brota. Allir fjórir eru ákærðir fyrir grófa nauðgun og morð af annarri gráðu – sem í lagalegu tilliti þýðir að verknaðurinn var ekki skipulagður fyrir fram.
Lögreglustjórinn í Covington, Michael Ferrell, sagði lausn málsins vitnisburð um þrautseigju lögreglu.
„Lausn máls Roxanne Sharp sýnir hvað gerist þegar staðráðnir lögreglumenn neita að láta fórnarlamb gleymast,“ sagði hann og bætti við að mikil vinna hefði farið í rannsóknina.
„Óleyst mál leysast ekki af sjálfu sér. Þau leysast vegna þess að fólk mætir ár eftir ár og gefst ekki upp.“
Hann bætti við að með handtökunum hefði fjölskylda fórnarlambsins loks fengið það réttlæti sem hún hefði beðið lengi eftir.
Saksóknarinn Collin Sims tók undir þetta og lagði áherslu á mikilvægi tækniframfara og samvinnu:
„Þetta mál er öflugt dæmi um hvað þrautseigja, samvinna og framfarir í rannsóknartækni geta áorkað,“ sagði Sims. „Handtökurnar endurspegla óbilandi skuldbindingu okkar til að sækja réttlæti, sama hversu langur tími er liðinn.“