„Ég tók boxið og kallaði á eiginkonuna. Við fundum að það var eitthvað þungt í því. Gat það verið gull eða mynt?“ skrifaði maðurinn á Imgur.
Þegar þau opnuðu nestisboxið fundu þau gamalt dagblað, dagsett 25. mars 1951. Þannig gátu þau tímasett hvenær boxinu hafði verið komið fyrir uppi á bjálkanum.
En undir dagblaðinu blasti sannkallaður fjársjóður við þeim, mikið magn peninga.
„Guð minn góður! Þetta er há upphæð! Við skulfum þegar þarna var komið við sögu. Var þetta virkilega að koma fyrir okkur?“ skrifaði maðurinn á Imgur.
„Sumir seðlarnir voru sjaldgæfari en aðrir. Allir voru þeir dagsettir á tímabilinu 1928-1934. Hvað áttum við að gera? Máttum við eiga þá? Hvers virði voru þeir?“ bætti maðurinn síðan við og upplýsti síðan að verðmæti seðlanna hafi verið 23.000 dollarar.
En sögunni lýkur ekki þarna, því um viku síðar fann hann annað nestisbox í kjallaranum. Það var þyngri en hitt. Peningar voru einnig í því og þegar upp var staðið höfðu þau fundið peninga að verðmæti 45.000 dollara en það svarar til um 6,2 milljóna íslenskra króna.
Peningarnir komu sér vel við að fjármagna endurbæturnar á húsinu.