Ástralskir háskólar hafa neyðst til að breyta fyrirkomulagi prófa og verkefnum af ótta við að stúdentar noti gervigreindarforrit til að skrifa ritgerðir. Stærstu háskólarnir hafa sett reglur sem kveða á um að notkun gervigreindar sé svindl en nokkrir nemendur hafa verið staðnir að slíku svindli. Sérfræðingur á sviði gervigreindar segir að háskólarnir séu með þessu komnir út í „vopnakapphlaup“ sem þeir geta ekki sigrað.
The Guardian skýrir frá þessu og segir að í september hafi ChatGPT, sem semji texta um hvað sem er ef því er sagt að gera það eða ef fyrirspurn berst, hafi verið sett á markað í nóvember af OpenAI. Nú þegar hafi allir almenningsskólar í New York bannað notkun forritsins þar sem það þyki hafa neikvæð áhrif á nám nemenda og sé hugsanleg uppspretta ritstuldar.
Í Ástralíu hefur háskólafólk lýst yfir áhyggjum af ChatGPT og svipuðum forritum og getu þeirra til að sneiða hjá ritstuldarforritum en um leið skila af fljótt af sér texta sem stenst kröfur háskólanna og virðist vera í lagi.
Samtök átta fremstu háskóla landsins hafa ákveðið að endurmeta hvernig próf og verkefni verða lögð fyrir á þessu ári vegna hinnar nýju tækni. Dr Matthew Brown, framkvæmdastjóri samtakanna, sagði að skólarnir hafi ákveðið að auka yfirsetu í prófum, að nota pappír og penna meira og leggja aðeins próf fyrir hópa sem lítil hætta þykir á að hafi rangt við.
Toby Walsh, prófessor í gervigreind við háskólann í New South Wales, sagði að þetta sé vopnakapphlaup sem sé hafið og það geti háskólarnir ekki sigrað.