fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Pressan

Óttast að veirur sleppi út frá rússneskri rannsóknarstofu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 20. desember 2022 06:07

Kórónuveiran skæða er enn á sveimi. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta hljómar kannski eins og söguþráður úr gamalli B-mynd en svo er ekki því á afskekktum stað í Síberíu er rússnesk rannsóknarstofa þar sem unnið er við rannsóknir sem sumir óttast að geti orðið til þess að nýr heimsfaraldur brjótist út.

Áður var unnið við rannsóknir á efnavopnum í rannsóknarstofunni en nú er unnið við rannsóknir á litlum mammút. Franski efnafræði- og eðlisfræðiprófessorinn Michel Claverie telur mikla hættu stafa af þessum rannsóknum.

Þar er að sögn verið að reyna að endurlífga 400.000 ára gamlar veirur. „Rannsóknin er mjög, mjög áhættusöm,“ sagði hann í samtali við The Times.

Rannsóknarstofan, sem heitir Vector, er í Novosibirsk. Þar hafa fundist mörg forsöguleg dýr. Eitt þeirra er 10.000 ára gamall mammút, ungt dýr. Rússnesku vísindamennirnir vinna við tilraunir með veirur í honum og ef þeim tekst að koma lífi í þær getur það valdið nýjum heimsfaraldri að sögn Claverie.

„Ónæmiskerfi okkar hefur aldrei tekist á við veiru af þessu tagi,“ sagði hann.

Hann var meðal þeirra sem fundu 30.000 ára gamla veiru í sífrera í Síberíu 2014. Það var ekki hættuleg veira en á þeim tíma sagði hann við BBC að rannsóknir á dýpri lögum sífrerans væri „uppskrift að hörmungum“.

Eftir því sem hann segir þá eru það ekki endilega veirurnar sem eru svo hættulegar, það sé frekar rannsóknarstofan sjálf. Ástæðan er að rannsóknarstofan er þekkt fyrir að þar hafa komið upp mörg mál þar sem hlutirnir fóru algjörlega úr böndum.

2004 lést kona, sem starfaði sem vísindamaður í rannsóknarstofunni, eftir að hún sprautaði sjálfa sig með ebóluveiru þegar hún var að gera rannsóknir á marsvínum.

Rannsóknarstofan komst einnig í fréttirnar 2019 þegar sprenging varð þar og eldur kviknaði. Þá var óttast að banvænar veirur á borð við ebólu og bólusótt gætu borist frá henni því slíkar veirur voru geymdar þar.

Claverie sagðist ekki hafa mikla trú á rannsóknarstofan sé mjög nútímaleg og tæknivædd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Maraþonhlaupari fagnaði aðeins of snemma – Sjáðu myndbandið

Maraþonhlaupari fagnaði aðeins of snemma – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Deilur Trump við Kanada koma sér illa fyrir bandarískar landamæraverslanir

Deilur Trump við Kanada koma sér illa fyrir bandarískar landamæraverslanir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“