fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Airbnb er komið með „OMG“ síu – Þetta eru geggjuðustu húsin sem eru til leigu – Myndir

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 21. maí 2022 06:30

Guli kafbáturinn. Mynd:Airbnb

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er ferðaþráin að gera út af við þig? Þarftu eitthvað veglegra en venjulegt hótelherbergi? Ef svo er þá hefur Airbnb safnað glæsilegustu (geggjuðustu) húsunum, sem eru í boði, í einn flokk.

Það er eiginlega við hæfi að þessi flokkur heitir „OMG“ (Oh My God) á heimasíðu leigumiðlunarinnar. Þar er hægt að sjá sumar af glæsilegustu eignunum sem eru í boði en þær eru margar hverjar einnig eiginlega bara geggjaðar, svo sérstakar og glæsilegar eru þær.

Það er til dæmis hægt að bóka gistingu í vínflösku á Indlandi, kú í Bretlandi eða fljótandi timburhúsi í Frakklandi.

Hér fyrir neðan geturðu séð sum af mest heillandi húsunum, eða jafnvel þeim geggjuðustu.

Hér er til dæmis einbýlishús í Salobrena á Spáni. Þar er pláss fyrir sex manns. Fallegt útsýni er til sjávar, hægt er að ganga beint af svölunum út í ljósbláa sundlaug og hönnun þaksins og hússins er heillandi.

Óneitanlega glæsilegt hús. Mynd:Airbnb
Útsýnið er ekki af lakara taginu. Mynd:Airbnb

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ef þú nennir að leggja langt flug á þig þá er tilvalið að fara til Indónesíu þar sem er hægt að gista í einbýlishúsi sem er búið til úr bambus. Það er á Balí. Þar er pláss fyrir fjóra gesti í tveimur svefnherbergjum.

Bambushúsið. Mynd:Airbnb
Það er glæsilegt að innanverðu. Mynd:Airbnb

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í Quebec í Kanada er Le MICA, sem er lýst sem litlu húsi en ekki er annað að sjá en þar sé nóg pláss og nóg af fersku lofti allt um kring. Sólarupprásin þar er sögð mögnuð sjón og 20 km gönguleiðir liggja í kringum húsið.

Það ætti að fara vel um fólk þarna. Mynd:Airbnb
Þvílík fegurð. Mynd:Airbnb

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu gista í kafbáti? Ef svo er þá er bara að skella sér til Nýja-Sjálands þar sem er hægt að gista í draumakafbáti allra Bítlaaðdánda „Yellow Submarine“. Morgunmatur er innifalinn í gistingunni þar. Kafbáturinn er þó ekki í sjónum því hann er í útjaðri Marton.

Guli kafbáturinn. Mynd:Airbnb
Hann er flottur að innan sá guli. Mynd:Airbnb

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á Isle of Wright í Bretlandi er hægt að gista í strætisvagninum sem var notaður í „SpiceWorld“ kvikmyndinni sem var gerð 1997 þegar Spice Girls voru á hátindi ferilsins.

Spice Girls strætóinn. Mynd:Airbnb
Hann er nú bara huggulegur að innanverðu. Mynd:Airbnb

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í Suður-Kóreu er hægt að gista í gítarhúsi í Gyeonggi-héraðinu. Tónlistaraðdáendur hljóta bara að sofa vel í þessu húsi.

Hver vill ekki gista í gítarhúsi? Mynd:Airbnb
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Í gær

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Í gær

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?