Það er um níu mínútur á lengd og var tekið af Kevin Westley sem var staddur á bát skammt frá byggingunum þegar árásin var gerð. Hann birti myndbandið raunar á YouTube fyrir um 20 árum en stillti það þannig að aðeins hann hafði aðgang að því. Hann áttaði sig á þessu nýlega og breytti þá stillingunni þannig að allir geti séð myndbandið.
Það byrjar eftir að fyrri flugvélinni var flogið á norðurturninn og sýnir eldhafið í henni.
Á upptökunni má heyra viðbrögð nærstaddra sem var að vonum illa brugðið.