Mennirnir höfðu klætt manninn og reynt að láta líta út fyrir að hann væri á lífi. The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að þessi óvenjulega atburðarás hafi hafist um klukkan 11.30 þegar annar mannanna kom inn á pósthúsið og sagðist vera að sækja lífeyrinn fyrir gamlan mann. Irish Times segir að honum hafi verið neitað um lífeyrinn og sagt að lífeyrisþeginn yrði að koma í eigin persónu til að sækja hann.
Maðurinn fór þá en kom aftur skömmu síðar með öðrum manni auk lífeyrisþegans. Tvímenningarnir studdu hann og fóru fram á að fá lífeyrinn hans greiddan.
En gjaldkeranum leist ekki á blikuna og neitaði að greiða þeim lífeyrinn og flúðu mennirnir tveir þá af vettvangi og skildu líkið eftir. Irish Times segir að hinn látni hafi þekkt mennina tvo.
Lögreglan er nú að rannsaka málið og bíður eftir niðurstöðu krufningar.