NBC News skýrir frá þessu. Fram kemur að Steiner hóf nám í eðlisfræði þegar hann var sjötugur en fyrir er hann menntaður læknir með blóðsjúkdóma sem sérgrein. Hann er einnig með doktorsgráðu í lífefnafræði. Hann var prófessor við Brown háskóla en lét af störfum árið 2000.
„Ég gat ekki séð fyrir mér að eyða lífinu í að spila golf öllum stundum. Ég vildi gera eitthvað sem héldi huganum virkum. En þetta snýst um, óháð hvað þú vilt, að láta drauminn rætast ef þú átt þér draum,“ er haft eftir Steiner í fréttatilkynningu frá Brown háskóla.
Þrátt fyrir að vera menntaður læknir þá dreymdi Steiner alltaf um að leggja stund á eðlisfræði og þann draum lét hann rætast.
Hann ólst upp í Vínarborg í Austurríki. Hann heillaðist af eðlisfræði þegar hann var á unglingsaldri en móðir hans og frændi töldu hann á að leggja læknisfræði fyrir sig. Hann útskrifaðist sem læknir frá háskólanum í Vínarborg 1955 og flutti fljótlega eftir það til Massachusetts þar sem hann stundaði framhaldsnám við Tuft háskóla og Massachusetts Institute of Technology. Hann varð prófessor yfirmaður blóðlækningadeildar Brown háskóla 1984 og gegndi því embætti til 1994.