fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Pressan

Hitamet í Kanada tvo daga í röð – 47,9 gráður

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 29. júní 2021 05:59

Börn kæla sig í miklum hita. Mynd:AFP

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á sunnudaginn mældist hitinn í Lytton, sem er þorp í suðurhluta Bresku Kólumbíu í Kanada 46,1 gráða og er það mesti hiti sem nokkru sinni hefur mælst í Kanada. Gamla metið var 45 gráður og var sett í Saskatchewan 1937.

Mikil hitabylgja er nú í vesturhluta Norður-Ameríku og fara Breska Kólumbía og Saskatchewan ekki varhluta af henni.

Einnig er mjög heitt í norðvesturríkjum Bandaríkjanna og hefur hitinn farið upp fyrir 40 gráður víða. Bæði í Bandaríkjunum og Kanada hafa yfirvöld varað almenning við því að lífshættuleg hitabylgja gangi nú yfir.

Það er ekki nóg með að hitamet hafi fallið á sunnudaginn í Lytton því það var slegið aftur í gær á sama stað en þá mældist hitinn 47,9 gráður. CBC skýrir frá þessu.

BBC segir að sala á loftkælingum og viftum hafi tekið mikinn kipp síðustu daga en barir, veitingastaðir og jafnvel sundlaugar hafa þurft að loka vegna hitans.

Kanadíska veðurstofan reiknar með að hitabylgjan hafi náð hámarki sínu og að nú fari að kólna aðeins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn
Pressan
Fyrir 3 dögum

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“