

Bruno Fernandes er með 57 milljóna punda klásúlu í samningi sínum við Manchester United, samkvæmt nýjustu fréttum.
Þrátt fyrir það eru forráðamenn United sagðir rólegir yfir stöðunni og telja að sæti í Meistaradeild Evrópu verði nægilegt til að sannfæra portúgalska miðjumanninn um að vera áfram á Old Trafford.
Fernandes hefur verið lykilmaður og fyrirliði liðsins undanfarin ár og félagið vill byggja framtíðarverkefni sitt áfram í kringum hann.
United veit þó að áhugi gæti skapast frá öðrum stórliðum ef klásúlan verður virkjuð, sérstaklega ef félagið mistekst að tryggja sér sæti meðal bestu liða Evrópu.
Meistaradeildarsæti gæti því skipt sköpum í að halda einum mikilvægasta leikmanni liðsins áfram hjá félaginu.