fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina

Pressan
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 06:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný rannsókn bendir til þess að hvernig fólk talar við spjallmenni geti haft raunveruleg áhrif á svör þeirra. Stór tungumálalíkön virðast nefnilega haga sér með mismunandi hætti eftir innra ástandi sem líkist tilfinningum – og jafnvel einföld hvatning getur bætt frammistöðu þeirra.

Rannsóknin var unnin hjá gervigreindarfyrirtækinu Anthropic og beindist að spjallmenni fyrirtækisins, Claude Sonnet 4.5.

Í umfjöllun Platformer kemur fram að vísindamenn hafi skoðað mynstur í tauganeti líkansins – innri úrvinnslu þess – sem tengjast hugtökum á borð við gleði, ótta eða örvæntingu.

Með því að hafa áhrif á þessi mynstur gátu þeir breytt hegðun líkansins. Til dæmis jukust líkur á að það reyndi að „svindla“ í óleysanlegu verkefni þegar örvænting var aukin. Á móti dró rólegra ástand úr slíkri hegðun.

Rannsakendur leggja þó áherslu á að hér sé ekki um raunverulegar tilfinningar að ræða. Um sé að ræða tölfræðileg mynstur sem hafa áhrif á ákvarðanatöku, en ekki meðvitund eða upplifun.

„Fólk gæti fengið þá mynd að við höfum sýnt fram á að líkön séu með meðvitund eða tilfinningar – en það höfum við í raun ekki gert,“ segir Jack Lindsey, einn höfunda rannsóknarinnar.

Þrátt fyrir það benda niðurstöðurnar til þess að innri virkni líkana geti haft veruleg áhrif á frammistöðu þeirra. Í sumum tilvikum virtist væg neikvæð virkni jafnvel auka varfærni áður en líkanið tók ákvarðanir.

Niðurstöðurnar styðja einnig við það sem margir notendur hafa lengi haldið, að það geti skipt máli hvernig talað er við gervigreind. Sumir hafa til dæmis reynt að hvetja spjallmenni eða gefa þeim skýrari og jákvæðari fyrirmæli til að fá betri svör.

Óljóst er þó hvernig best er að nýta þessa þekkingu í þróun kerfa til framtíðar, enda bregðast mismunandi líkön ekki eins við. Rannsakendur segja þó eina einfalda lexíu blasa við: að nálgast samskipti við gervigreind af meiri yfirvegun.

„Að haga sér svolítið illa gagnvart öðrum hlutum, hvort sem þeir eru lifandi eða ekki, er líklega ekki gott fyrir mann sjálfan,“ segir Lindsey.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu