

Benfica hefur sett Marco Silva á lista sinn yfir helstu kandídata til að taka við liðinu ef Jose Mourinho yfirgefur félagið í sumar.
Mourinho hefur verið orðaður sterklega við endurkomu til Real Madrid og því er Benfica þegar byrjað að undirbúa mögulegan arftaka.
Marco Silva, sem stýrir nú Fulham, er sagður einn fremsti kostur félagsins. Hann hefur vakið athygli fyrir góðan árangur í ensku úrvalsdeildinni og þykir hafa styrkt orðspor sitt verulega undanfarin ár.
Engin ákvörðun hefur þó verið tekin enn sem komið er, enda framtíð Mourinho enn óljós.
Benfica virðist hins vegar vilja vera undirbúið ef breytingar verða á stjórastólnum fyrir næsta tímabil.