
Fyrirliði Chelsea, Millie Bright, hefur tilkynnt að hún sé að leggja skóna á hilluna aðeins 32 ára gömul.
Bright tilkynnti ákvörðunina í gær og var sýnilega klökk þegar hún kvaddi eftir 12 ár hjá félaginu.
„Að spila fyrir Chelsea hefur haft svo mikla þýðingu, en nú er ég tilbúin að hætta,“ sagði Bright.

„Ég hef gefið allt sem ég á og vildi aldrei spila fyrir annað merki.“
Bright á metið yfir flesta leiki fyrir Chelsea, alls 314, og hefur unnið fjölda titla með félaginu, þar á meðal átta Englandsmeistaratitla.
Hún útilokaði ekki að starfa áfram hjá félaginu utan vallar.
Bright lék 88 landsleiki fyrir England og var fyrirliði liðsins þegar það komst í úrslit HM árið 2023.
Millie Bright has today announced her retirement from professional football, bringing an extraordinary Chelsea playing career to a close.
Everyone at Chelsea would like to thank Millie for her incredible commitment and dedication to the club over the last 12 years. Her legacy… pic.twitter.com/mikgdm5jVs
— Chelsea FC Women (@ChelseaFCW) April 29, 2026