fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Pressan
Mánudaginn 27. apríl 2026 06:30

Atvikið náðist á eftirlitsmyndavél.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

13 ára drengur er sakaður um að hafa valdið dauða yfirmanns hjá Prada á Ítalíu með því að kasta styttu fram af svölum. Að sögn saksóknara hafði hann áður kastað hlutum niður úr hæð.

Chiara Jaconis var á gangi með kærasta sínu, Livio Rousseau, um spænska hverfið í Napólí í september 2024 þegar hún fékk tveggja kílóa styttu í höfuðið. Í ljós kom að styttunni hafði verið kastað fram af svölum húss fyrir ofan og var sökudólgurinn 13 ára drengur. Höggið var mikið enda var styttunni kastað úr 10 metra hæð.

Chiara hlaut alvarlega höfuðáverka og lést hún á sjúkrahúsi nokkrum dögum síðar.

Kastaði spjaldtölvu og fjarstýringu niður

Ítalskir saksóknarar halda því fram að foreldrar drengsins hafi ekki gripið til nauðsynlegra varúðarráðstafana þrátt fyrir að hafa vitað að hann ætti þetta til.

Drengurinn, sem saksóknarar lýsa sem vandræðabarni, hafði áður kastað spjaldtölvu, fjarstýringu fyrir loftkælingu og þvottaklemmum niður af svölunum, samkvæmt frétt La Ragione sem New York Post fjallar um.

Fyrir dómi í síðustu viku kom fram að um 15 mánuðum fyrir andlát Jaconis hafi móðir drengsins lýst áhyggjum sínum við barnfóstru hans að hann gæti tekið upp á því að kasta hlutum fram af svölunum.

Þegar atvikið átti sér stað var Jaconis, sem var frá Padua, á leið út á flugvöll eftir rómantíska ferð til Napoli með Livio.

Drengurinn sýknaður en foreldrarnir gætu sætt ákæru

Drengurinn var sýknaður af allri saknæmri háttsemi í málinu þar sem börn undir 14 ára aldri bera ekki refsiábyrgð samkvæmt ítölskum lögum. Saksóknarar hafa hins vegar farið fram á að foreldrar hans verði ákærðir fyrir manndráp af gáleysi.

Þeir halda því fram að foreldrarnir hafi ekki gripið til nægjanlegra ráðstafana, svo sem varðandi læsingar, til að koma í veg fyrir að sonur þeirra kæmist út á svalirnar.

Foreldrar drengsins neita alfarið sök. Lögmaður þeirra, Carlo Bianco, segir að um hafi verið að ræða harmleik og tvær fjölskyldur séu nú í sárum egna hans.

Réttarhöld verða haldin 26. júní þar sem ákveðið verður hvort foreldrunum verði gert að sæta ákæru. Jaconis hafði starfað hjá Prada frá október 2022, samkvæmt LinkedIn-síðu hennar. Hún hafði áður starfað fyrir tískumerkin L’Oréal, Givenchy og Christian Louboutin í París.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu