
Jótlandspósturinn fjallaði nýlega um málið í kjölfar þess að könnun leiddi í ljós að það eru frekar konur en karlar sem sjá um matseldina á dönskum heimilum.
Í samtali við Jótlandspóstinn sagði Mathilde Colbjørn Holst, varaformaður ungliðadeildar Liberal Alliance í Kaupmannahöfn og laganemi, að í hnotskurn snúist þetta um að konur eigi að krefjast þess að karlarnir taki þátt í matseldinni.
Hún kom síðan með góð ráð um hvernig konur geta losnað úr eldhúsinu.
Ekki giftast duglausum maka – „Ef þú giftist manni sem getur ekki sinnt húsverkum, þar á meðal eldað mat, þá kemurðu þér í frekar erfiða stöðu strax í upphafi. Þess vegna gefur það alltaf meiningu að finna sér maka sem gerir eitthvað. Í þessari stöðu er auðvitað allra snjallast að finna sér maka sem er menntaður kokkur.“
Ekki falla fyrir sögunni um að það sé „eðlilegt“ að þú eldir – „Stærsti óvinur kvenna inni á heimilinu eru eldgömul kynjahlutverk íhaldshyggjunnar og sagan um að heimilið sé yfirráðasvæði konunnar og að yfirráðasvæði mannsins sé vinnumarkaðurinn. Það eru þessar leifar fortíðarinnar sem gera að verkum að kynjahlutverk nútímans og venjur valda því að konur eiga frekar að vinna heima og sinna húsverkunum. Þess vegna mæli ég með að þú takist á við þessar úr sér gengnu hugmyndir um hlutverk kynjanna í þínu eigin lífi, meðal annars með því að krefjast að matseldin sé á ábyrgð ykkar beggja, eitthvað sem þú og maki þinn takist á við í sameiningu.“
Stemmdu væntingarnar af með maka þínum, finnið málamiðlun – „Ég heyri reglulega frá vinkonum mínum og kunningjum að ástæðan fyrir að þær sitja uppi með eldamennskuna á heimilinu sé að þær geri sérstakar kröfur (til dæmis að það eigi að borða hollan og fjölbreyttan mat) og að þess vegna sé eðlilegt að þær sjái um matseldina svo þær geti verið vissar um að þessum kröfum sé mætt. Þetta hljómar kannski skynsamlega í fyrstu en þessi hugsunarháttur er í raun stórt vandamál. Út frá þessum hugsunarhætti verður það alltaf þrifnasti og snyrtilegasti aðilinn í ástarsambandinu sem sér um allt. Þess í stað ætti að stemma væntingarnar af og finna málamiðlun þannig að samið sé um matarþörf fjölskyldunnar og hvað hún vill og það sé síðan sameiginleg ábyrgð að uppfylla þetta.“
Skiptið jafnt svo það sé skýrt hver eldar hvenær – „Gegnsæi er mikilvægt þegar kemur að húsverkunum og matseldinni. Hjá mörgum er húsverkunum misskipt en fólk áttar sig ekki á því af því að það er ekki rætt um það eða samið um hver gerir hvað. Þess vegna endar þetta með að konan í fjölskyldunni sér um flest, oft án þess að hún eða maðurinn hennar átti sig á því. Þess vegna er skynsamlegt að gera skýran samning um hver gerir hvað, þannig að sem par/hjón skiptist verkin jafnt á milli fólks.“
Slepptu því að tileinka þér hæfileika í matseld – „Ef ekkert af ofangreindu virkar, þá getur þú algjörlega afsalað þér matseldinni, kannski meira að segja sleppt því að tileinka þér þá hæfileika sem þarf til að elda mat svo þú getir verið örugg um að þú endir ekki með að eyða dýrmætum tíma þínum við kjötpottana. Þetta er snjöll útgáfa af „vopnaðri vanhæfni“, sem karlar hafa svo sannarlega stundað, og konur geta einnig nýtt sér.“