fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Farþegum fjölgaði um einn í háloftunum – Fæddi hálftíma fyrir lendingu

Pressan
Mánudaginn 27. apríl 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einstakt atvik átti sér stað í fimm klukkustunda flugi Delta frá Atlanta til Portland þegar fæðing fór af stað. Af einskærri tilviljun voru læknir og tveir hjúkrunarfræðingar um borð sem brugðust hratt við og komu barninu í heiminn með aðstoð flugþjóna.

„Þetta var í raun einstök upplifun,“ sagði Tina Fritz, sjúkraflutningamaður, sem aðstoðaði við fæðingu barnsins. Fritz var að ferðast með Cararin Powell, sem er einnig sjúkraflutningamaður, og gerðu þau sér fljótt grein fyrir takmörkuðum birgðum um borð í vélinni til að hjálpa móðurinni sem var að fæða.

„Ég bað um fæðingarbúnað, sem þau áttu ekki. Ég bað um teppi, sem þau áttu ekki. Svo ég sagði að við þyrfum að fá teppi frá farþegunum. Ég þarf líka skóreimar,þannig að einn flugþjóninn tók sínar skóreimar og klippti þær til fyrir okkur,“ sagði Fritz.

Hún sagði að fæðingin hefði sem betur fer tekið stuttan tíma. „Móðirin sagðist þurfa að rembast. Og eftir þrjár góðar rembingar var barnið fætt og allt leit fullkomlega út. Mamman stóð sig svo vel,“ sagði Fritz.

Barnið fæddist heilu og höldnu 30 mínútum fyrir lendingu á Portland-alþjóðaflugvellinum.

„Ég klippti á naflastrenginn og við vöfðum barnið inn. Þá var flugvélin að lenda og við Kaarin höfðum engan tíma til að setjast og spenna okkur í belti. Svo settum við barnið í fangið á móðurinni og vélin keyrði að landganginum. Allir um borð klöppuðu og fögnuðu. Þetta var frábært.“

Samfarþegar sögðu að upplifunin hefði verið óraunveruleg. „Það var frekar ótrúlegt að sjá þetta allt gerast,“ sagði einn þeirra.

Jess Cushenberry, íbúi í Atlanta, var um borð í flugvélinni með dóttur sinni, Taylor, og sagði að læknisfræðilegt neyðarástand hefði komið upp aftast í vélinni áður en konan fór í fæðingu.

„Ég vissi í raun ekki hvað var í gangi í fyrstu. Og svo einhvern veginn komst farþegi minn að því að barn væri að fæðast,“ sagði Cushenberry við fjölmiðla.

Cushenberry, sem var aðeins nokkrum röðum frá, sagði að engin merki hefðu verið um erfitt ástand eða hættuástand á meðan á fæðingunni stóð.

„Ég hef fætt barn, og ég hef fætt náttúrulega, svo ég veit að þetta er ekki þægileg staða til að vera í. Og móðirin var ekki að öskra eða læti,“ sagði hún um móðurina.

Cunshenberry hrósaði einnig áhöfninni um borð fyrir viðleitni þeirra til að koma barninu örugglega af stað í óhefðbundnu umhverfi. „Þau stóðu sig virkilega vel í vinnunni sinni og héldu öllum rólegum og skipulögðum.“

Við lendingu tóku sjúkraflutningamenn á móti móður og barni, sem bæði voru í „stöðugu ástandi“.

„Heilsa og öryggi farþega okkar er alltaf okkar aðalforgangsverkefni og við óskum nýju fjölskyldunni alls hins besta,“ sagði í tilkynningu frá Delta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu