Tvær unglingsstúlkur, 13 og 15 ára, eru grunaðar um að hafa orðið Mohammad Anwar, 66 ára sendli hjá Uber Eats, að bana í Washington D.C. í Bandaríkjunum í síðustu viku.
Þær eru sakaðar um að hafa beitt rafbyssu gegn honum þegar þær stálu bíl hans. Þegar hann varð fyrir rafstuðinu missti hann stjórn á bílnum og slys átti sér stað. Lést Anwar í slysinu að sögn lögreglunnar. CNN skýrir frá þessu.
Stúlkurnar hafa verið kærðar fyrir morð og vopnað rán að sögn lögreglunnar.
Í yfirlýsingu frá Uber Eats er lögreglunni þakkað fyrir að hafa handtekið stúlkurnar og andlát Anwar harmað og fjölskyldu hans sendar samúðarkveðjur.