fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Breytt Marine Le Pen undibýr slag við Emmanuel Macron á næsta ári

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 21. febrúar 2021 18:00

Marine Le Pen. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marine Le Pen, leiðtogi öfgahægrimanna í Frakklandi, dregur nú á Emmanuel Macron í skoðanakönnunum um hver verður næsti forseti landsins. Macron er gríðarlega óvinsæll og Le Pen nýtur góðs af því. Nú eru 14 mánuðir í forsetakosningar og er Macron að sögn orðinn ansi áhyggjufullur yfir stöðunni. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar styðja 41% kjósenda Macron en 59% eru óánægð með hann.

Nýlega sendi Macron staðgengil sinn. Gérald Darmanin, innanríkisráðherra, í kappræður við Le Pen á sjónvarpsstöðinni France 2. Darmanin hefur fengið hlutverk einhverskonar stuðpúða fyrir Macron gegn öfgahægrimönnum. Le Pen er leiðtogi Rassemblement National sem er flokkur öfgahægrimanna. Hún þótti vera gjörbreytt frá því sem áður var og þykir því líkleg til að geta velgt Macron undir uggum í forsetakosningunum og jafnvel sigrað hann.

Í kosningunum 2017 kastaði hún öllum sigurmöguleikum sínum frá sér í sjónvarpskappræðum þar sem hún þótti einna helst minna á óheflaðan götustrák sem skorti alla sjálfsstjórn og vissi lítið sem ekkert um mikilvægustu málefnin sem voru þá efst á baugi.

Nú fengu sjónvarpsáhorfendur hins vegar að sjá yfirvegaða og vel undirbúna Le Pen. Hún var róleg og uppbyggileg í kappræðunum enda veit hún að það er leiðin til að byggja upp trúverðugleika sinn. Aðalumfjöllunarefnið voru ný lög sem beinast gegn öfgasinnuðum múslimum og útbreiðslu skoðana þeirra í frönsku samfélagi. Öfgasinnaðir múslimar ráða meira og minna ríkjum í sumum úthverfum stórborga landsins og margar hryðjuverkaárásir hafa verið gerðar í landinu á síðustu árum.

Íslamisti er hugmyndafræði sem er hægt að berjast gegn eins og rasisma. Við eigum að nota öll úrræði ríkisins, ekki til að áreita íslamistann, heldur til að útrýma honum,“ sagði Le Pen og kom síðan með fjölda tillagna um hvernig væri hægt að loka moskum, stöðva straum innflytjenda til landsins, vísa öfgasinnuðum múslimum úr landi og svipta íslamista opinberum styrkjum.

Hugmyndir Le Penn ollu Darmanin ákveðnum vandræðum en hann er hægra meginn við miðju í ríkisstjórn Macron og var hann löngum stundum sammála Le Pen enda gat hann varla annað því hann skrifaði bók um hvernig íslamisti laumar sér inn í samfélagið og las Le Pen hvað eftir annað upp úr bókinni. En sem ráðherra veit hann auðvitað að raunveruleikinn er miklu flóknari en stutt og vinsæl slagorð. „Að stöðva straum innflytjenda til landsins leysir ekki vandann með íslamista í Frakklandi“ sagði hann og bætti við að nær öll ríki heims glími við þennan sama vanda. Í Frakklandi séu íslamistar hins vegar dæmdir fyrir það sem þeir gera, ekki fyrir það sem þeir eru. Hann sakaði Le Pen um að slá um sig með ónákvæmum tölum, lygum og falsfréttum. Óvíst er hins vegar hvort það nái eyrum kjósenda sem sáu nýja og yfirvegaða Le Pen þjarma að ráðherranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf