fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Pressan

Uppselt á Hróarskelduhátíðina 2021

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 13. maí 2020 21:00

Hróarskelduhátíðinni hefur verið aflýst í ár.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Engin Hróarskelduhátíð verður haldin þetta árið en ástæðan er að sjálfsögðu heimsfaraldur kórónuveiru. Hátíðin í ár hefði verið sú fimmtugasta í röðinni. En skipuleggjendur hátíðarinnar halda ótrauðir áfram og stefna á að halda hátíðina á næsta ári. Þessu hefur verið vel tekið, svo vel að nú er uppselt á hana.

Þeim, sem höfðu keypt miða á hátíðina í ár, var boðið að skipta miðanum fyrir miða á hátíðina á næsta ári. Þessu var gríðarlega vel tekið og nýttu 85% miðakaupenda sér þetta tilboð. Eftir voru 12.000 miðar og voru þeir settir í sölu á þriðjudaginn og kláruðust nær samstundis.

Það hélt ekki aftur af fólki að ekki er vitað hvaða listamenn munu koma fram á hátíðinni að ári.

Á heimasíðu hátíðarinnar segir að þar á bæ sé fólk gríðarlega hamingjusamt og þakklátt fyrir það mikla traust sem hátíðinni er sýnt með þessum góðu viðtökum fólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn
Pressan
Fyrir 3 dögum

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“