Á undanförnum árum hafa tveir ráðherrar í dönsku ríkisstjórninni eytt sem svarar til um 13 milljóna íslenskra króna í að innrétta skrifstofur sínar. Ráðherrunum þykir ekkert athugavert við þetta en margir eru annarrar skoðunar og telja að hér sé einfaldlega um bruðl að ræða.
Það eru fjármálaráðherrann, Kristian Jensen, og Sophie Løhde, ráðherra nýsköpunarmála, sem hafa látið taka skrifstofur sínar svona hressilega í gegn. Þau eru bæði í Venstre.
Danska ríkisútvarpiðskýrir frá þessu en það fékk yfirlit yfir kostnaðinn afhentan á grunni upplýsingalaga.
Fjármálaráðuneytið segir að nauðsynlegt hafi verið að taka skrifstofu ráðherrans í gegn þar sem engar stórar endurbætur hafi verið gerðar á henni frá 1982. Þá hafi þurft að útbúa alveg nýja skrifstofu fyrir Sophie Løhde sem er fyrst ráðherra nýsköpunarmála.
Jafnaðarmönnum og Danska þjóðarflokknum, sem ver ríkisstjórnina vantrausti og tryggir setu hennar sem minnihlutastjórnar, finnst óskiljanlegt að svona miklum fjármunum hafi verið eytt í skrifstofurnar.
Meðal þess sem var keypt voru ný sjónvörp og teppi, stólar og gardínur.