fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Ætla Rússar að ráðast á Úkraínu? Miklir liðsflutningar við landamærin

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 30. nóvember 2018 05:45

Rússneskir hermenn. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spennan á milli Rússlands og Úkraínu hefur farið vaxandi að undanförnu eftir að Rússar hertóku þrjú úkraínsk herskip og handtóku 20 manna áhafnir þeirra. Petro Porosjenki, forseti Úkraínu, segir að hertakan hafi verið fyrsta skref Rússa að innrás í Úkraínu. Hann segir að rússneski herinn hafi nú sent mikinn liðsafla að landamærum ríkjanna.

Hertaka skipanna sýndi mátt Rússa á Svartahafi og nærliggjandi hafsvæðum. En spurningin sem margir spyrja sig nú er hvort hertakan hafi aðeins verið einn liður í ráðagerðum Vladimír Pútíns, Rússlandsforseta, um að ráðast inn í Úkraínu. Rússar hafa stutt uppreisnarmenn í austurhluta Úkraínu með ráðum og dáð á undanförnum árum en þar hafa átök staðið yfir í tæp fimm ár. Rúmlega 10.000 manns hafa látið lífið í þeim. Þá hertóku Rússar Krímskaga 2014 og innlimuðu í Rússland.

Jótlandspósturinn hefur eftir Oleksej Melnyk, úkraínskum hernaðarsérfræðingi, að hann telji 90 prósent líkur á að Rússar ráðist ekki inn í Úkraínu. Hann sagðist ekki sjá að Rússar sjá sér neinn hag í innrás núna en þegar Pútín eigi í hlut sé ekki hægt að útiloka neitt. Hann hafi á undanförnum árum tekið margar ákvarðanir sem hafi ekki þjónað hagsmunum Rússlands.

„Innrás yrði mjög dýrkeypt, bæði í mannslífum talið og með algjörri einangrun Rússlands á alþjóðavettvangi. En Pútín er svo óútreiknanlegur að allt getur gerst.“

Sagði Melnyk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?